Dagar myrkurs

Í dag kveiktu foreldrar og börn á Haga og Seli á kertum við deildir sínar. Börnin á Stekk gerðu slíkt hið sama með kennurum sínum.
Undanfarna daga hefur verið unnið að undirbúningi þessa dags með því að skreyta kertaluktir, teiknað og klippt og margt fleira allt eftir aldri og þroska hvers og eins.
Sel bauð elstu börnunum á Stekk og börnunum á Haga ásamt Völu skólastjóra á skemmtun. Til skemmtunar var samsöngur, skuggaleiksýning og danslagið: Í rigningu ég syng. Einnig var leikið með ljós og skugga.
Fréttamynd - Dagar myrkurs Fréttamynd - Dagar myrkurs Fréttamynd - Dagar myrkurs

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn