Vegleg gjöf frá vinkonu

Það sýndi sig að sannir vinir eru dýrmætir. Við eigum marga slíka og kom einn þeirra færandi hendi með fullan kassa af fötum og rúmfatnaði fyrir hlutverkaleikinn okkar.
Þóra Sigríður eldhússtarfsmaður Hádegishöfða er mikil hannyrðarkona og þegar hún heyrði af því að dúkkurnar okkar væru fatalitlar og að fá teppi væru til gerði hún sér lítið fyrir og prjónaði, saumaði og heklaði fyrir okkur þannig að nú er til fallegt safn hluta til að nota með í dúkkunum í hlutverkaleik.
Fréttamynd - Vegleg gjöf frá vinkonu Fréttamynd - Vegleg gjöf frá vinkonu

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn